Sögulegt skref var tekið í flugsögu Íslands þegar fyrsta farþegaflug Air China lenti á Keflavíkurflugvelli frá Pekíng. Álfasaga Airline Catering fagnar því að vera valin sem þjónustuaðili félagsins á Íslandi og sér um allan mat og veitingar um borð í vélunum fyrir flugið til baka.
Flogið er þrisvar í viku milli Pekíng og Keflavíkur með stuttri viðkomu í Kaupmannahöfn. Ferðalagið tekur alls um 14 og hálfan tíma og því skiptir miklu máli að farþegar og áhöfn fái fyrsta flokks næringu og upplifun á langri leið. Undirbúningur fyrir þjónustuna hefur verið krefjandi og kallað á mikla nákvæmni og fagmennsku. Matseðlarnir eru samansettir með ströngum gæðakröfum Air China í huga, þar sem alþjóðlegum matargerðarhefðum er mætt af virðingu samhliða hágæða hráefni.
Fyrsta fluginu var fagnað með viðhöfn í Leifsstöð í vikunni að viðstöddum ráðamönnum, forsvarsmönnum flugfélagsins og áhöfn. Fyrir okkar teymi er mikill heiður að taka þátt í þessum tímamótum í samskiptum Íslands og Kína. Við erum stolt af okkar starfsfólki sem stóð vaktina og tryggði að allt gengi snurðulaust fyrir sig við fyrstu afgreiðslu. Við hlökkum mikið til áframhaldandi og farsæls samstarfs við Air China á nýrri flugleið.