Um okkur

Álfasaga var stofnað árið 2013 og er móðurfélag nokkurra fyrirtækja sem eiga það öll sameiginlegt að framleiða gæða matvöru sem seld er á neytendamarkaði, til stóreldhúsa og til flugfélaga. Markmið Álfasögu er ávallt að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu, stuðla að nýsköpun og vera leiðandi í gæða framleiðslu matvæla.

Dagný & Co. býður uppá fjölbreytt úrval tilbúinna rétta úr hágæða hráefni sem henta vel þegar tíminn er naumur eða þegar fólk vill gera vel við sig með lítilli fyrirhöfn.​ Í framleiðslu okkar veljum við einungis hágæða hráefni og framleiðum umfram allt bragðgóða rétti.

Móðir Náttúra býður upp á hollari og léttari valkost tilbúinna matvæla og drykkja. Hollusta er okkur hjartans mál og leggjum við okkur ávallt fram um að velja einungis hágæða hráefni fyrir framleiðslu okkar. Vörur okkar byggja á grænmeti, baunum, heilu korni og ávöxtum, þær hafa flestar lítið sykurinnihald og innihalda ekki rautt kjöt.

Einn, tveir og elda hefur það markmið að einfalda fólki lífið og gefa því kost á að verja dýrmætum tíma sínum í gæðastundir með fjölskyldunni. Við kappkostum að hafa fjölbreytni í matargerð okkar og tryggja að viðskiptavinir okkar læri nýjar aðferðir sem koma bragðlaukunum endalaust á óvart.

Leita